Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Fólk á faraldsfæti Prenta
Almennar fréttir
þriðjudagur, 31 ágúst 2010 12:13

Jæja gott fólk, talsvert miklar breytingar eru að eiga sér stað í starfsmannhópnum á Klömbrum. Hanna leikskólastjóri er horfin til annarra starfa og hefur Þóra tekið við sem leikskólastjóri fram að áramótum og Hulda (deildarstjóri á Teig) verður aðstoðarleikskólastjóri fram að áramótum. Valdís á Teig er farin í skóla. Þorgerður þroskaþjálfi er horfin til nýrra starfa á nýjum stað. Soffía Gríms og Nína munu minnka verulega við sig vinnu en þær eru sestar enn á ný á skólabekk. Við sem eftir sitjum erum með þá von í hjarta að þetta góða fólk sé að upplifa atferli farfuglanna þ.e. að hverfa að hausti en koma til baka að vori

Á næstu dögum/vikum mun því nýtt fólk bætast í hóp Klambrara, nú þegar er komin nýr starfsmaður á Teig, hún Maja og Gígja kemur fljótlega til baka úr fæðingarorlofi.

 
Netfangabreytingar Prenta
Almennar fréttir
mánudagur, 30 ágúst 2010 13:20

Þessa dagana er verið að breyta netföngum kennara...upplýsingar varðandi ný netföng koma von bráðar á síðuna.

 
Velkomin aftur allir saman Prenta
Almennar fréttir
mánudagur, 16 ágúst 2010 15:19

Þá eru flestir búnir að skila sér í hús eftir sumarfrí. VELKOMIN ÖLL AFTUR. Flestir eru endurnærðir og fegnir að hitta alla vini sína og komast í fasta rútínu. Börnin eru á faraldsfæti milli deilda og alla leið í grunnskóla og ný börn koma inn af götunni. Í rólegheitum smellur allt saman og við höldum inn í haustið með gleði í hjarta og von um hamingjuríka framtíð

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 59

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Klambrar | Háteigsvegi 33 | 105 Reykjavík | s: 511 1125 | Póstur | Viðburðir | Fréttir