|
Grænfáninn blaktir við hún |
|
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 26 maí 2010 10:14 |
|
Loksins er Grænfáninn kominn á Klambra, húrra, húrra, húrra. Fáninn fær að bærast ljúflega í vindinum og við horfum á með stolti í hjarta. En þó fáninn sé kominn í hús þá megum við ekki slaka á i umhverfismenntinni, við höldum ótrauð áfram á braut náttúruverndar.
Við þökkum þeim kærlega fyrir sem sáu sér fært að gleðjast með okkur á útivinafundinum.
Í sameiginlega albúminu eru komnar inn myndir frá afhendingunni. |
|
|
Frábæra foreldrafélag þúsund þakkir |
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 21 maí 2010 21:47 |
|
Okkur kennurum á Klömbrum langar að þakka foreldrafélaginu fyrir frábærlega vel heppnaða vor/sumarhátíð 
Ekki erum við síður ánægð með framúrskarandi þáttöku foreldra, systkina, afar, ömmur og allra annarra sem gerðu sér glaðan dag á Klambratúni og að lokum þökkum við þeim sem hefur yfirumsjón með veður fjarstýringunni því varla gátum við verið heppnari með veður.
Góða helgi og hlökkum til að sjá alla hressa og káta á þriðjudag. |
|
Græni dagurinn + lokað f.h. á mánudag |
|
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 12 maí 2010 13:20 |
|
Minnum á að mánudaginn 17. maí eru Klambrar lokaðir fyrir hádegi vegna skipulagsdags. Við opnum kl.12:30. Hádegisverður er ekki í boði þennan dag.
Ekki gleyma græna deginum föstudaginn 14. maí og því að Grænfáninn kemur í hús kl. 14:00. Allir velkomnir að fagna með okkur á útivinafundi kl. 14:00 |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 5 af 59 |