Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Gjörningur Prenta
Almennar fréttir
mánudagur, 19 apríl 2010 09:27

Í tilefni barnamenningarhátíðar ætlum við að gera okkur glaðan dag þriðjudaginn 20. apríl. Fyrir hádegi verðum við í garðinum okkar þar sem gjörningur mun eiga sér stað úr náttúruefnivið og endurvinnanlegu efni, drumbar, greinar, kassar, flöskur o.fl.

Eftir hádegi kl. 13:45 skundum við á Klambratún þar sem við byrjum á vinafundi í skeifunni og syngjum nokkur krummalög. Ákveðin tré verða skreytt með efnivið frá börnunum. Að lokum munum við drekka í skeifunni og áætlað er að vera komin til baka í kringum kl. 15:30. Það er góð hugmynd að hringja á undan sér til að vera viss um að barnið sé komið til baka á Klambra.

                                   Foreldrum er velkomið að koma og vera með okkur.

 
Páskakveðja Prenta
Almennar fréttir
miðvikudagur, 31 mars 2010 12:59

Við óskum ykkur öllum gleði og afslöppunar yfir páskana.

 

Minnum á að Klambrar eru lokaðir fyrir hádegi þriðjudaginn 6. apríl. Við opnum kl.12:30 og hádegisverður er ekki í boði þann dag.

 
Heildarflæði Prenta
Almennar fréttir
miðvikudagur, 31 mars 2010 12:54

Í stað þess að hafa vinafund í morgunn var ákveðið að hafa heildarflæði og hvað skyldi það svo vera??? Fyrir hádegi voru semsagt opin tvö svæði á hverri deild og gátu börnin valið sér svæði sem þeim leist val á og dvalið þar í það minnsta 10 mín en gátu þá skipt á nýtt svæði. Þetta lukkaðist vel og aldrei að vita nem þetta verði endurtekið.

Það eru komnar inn myndir frá morgninum í sameiginlega albúmið.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 8 af 59

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Klambrar | Háteigsvegi 33 | 105 Reykjavík | s: 511 1125 | Póstur | Viðburðir | Fréttir