Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Yngismeyjadagur Prenta
Almennar fréttir
mánudagur, 15 febrúar 2010 09:36

Föstudaginn 19. feb langar okkur að bjóða mömmum, ömmum, frænkum, systrum o.s.frv í morgunkaffi.

Morgunkaffið hefst kl.8:30 og vinafundur byrjar kl.9:15. Áætlað er að vinafundi ljúki um kl.10:00.

Börnin verða með uppákomur á vinafundi og að sjálfsögðu er gestum velkomið að láta ljós sitt skína.

Hlökkum til að sjá sem flesta:)

 
Öskudagur Prenta
Almennar fréttir
mánudagur, 15 febrúar 2010 09:15

Öskudagur verður mikill gleðidagur á Klömbrum. Klukkan 9:45 koma allir saman að slá köttinn úr tunnunni og í framhaldi af því verður ball og gleði.

Börnin mæta í búningunum í leikskólann.

 
Góss og aftur góss Prenta
Almennar fréttir
föstudagur, 05 febrúar 2010 12:31

Eins og öllum sönnum Klömbrurum ætti að vera orðið kunnugt þá erum við snillingar í að nýta hið ónýtanlega. Ef þið lumið á einhverju góssi þá erum við meira en til í að taka við því og gefa því áframhaldandi líf. Svona til að nefna eitthvað; pappír, efni, kassar, borðar, pokar, plastílát undan ýmsu, tölur, búningar, föt, símar, lyklaborð, hárkollur og nánast hvað sem ykkur dettur í hug.

Einnig viljum við þakka kærlega fyrir það góss sem okkur hefur nú þegar borist. Það hafa verið stolt Klambra-börn með brosi á vör sem burðast inn með poka og ganga frá efniviðnum þar sem hann er geymdur.

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 10 af 59

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Klambrar | Háteigsvegi 33 | 105 Reykjavík | s: 511 1125 | Póstur | Viðburðir | Fréttir