|
Sumarkveðja |
|
|
Almennar fréttir
|
|
mánudagur, 12 júlí 2010 10:16 |
|
Kæru foreldrar og börn
Nú fer sumarfríið að bresta á. Við óskum ykkur gleði og ánægju í sumarfríinu. Kærar þakkir fyrir að þykja væntu um okkur og styðja okkur í gegnum súrt og sætt.
Klambrar opna aftur fimmtudaginn 12. ágúst. |
|
|
Köngulóa- vinafundur |
|
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 07 júlí 2010 21:20 |
|
Föstudaginn 9. júni ætla Klambrar að hafa vinafund tileinkaðan köngulóm. Börnin munu syngja ýmis köngulóalög og sitthvað fleira. Vinafundur er kl.9:15 og eins og alltaf þá er öllum frjálst að mæta og vera með okkur.
|
|
Úti góss óskast :):) |
|
|
Almennar fréttir
|
|
mánudagur, 28 júní 2010 22:46 |
|
Kæru Klambravinir
Í kjölfar þess að Klambrar fengu Grænfánann í vor hafa eldri börnin ve rið spurð af hverju við fengum Grænfánann og svörin hafa ekki verið langt undan m.a. ,,Það er af því við erum svo dugleg að endurtaka" , ,,Af því að við hjálpum náttúrunni og erum svo góð við hana".
Hverjum og einum er hollt að eiga sér drauma og sameiginlegur draumur okkar á Klömbrum er að hafa nátttúrulegt og skemmtilegt leikumhverfi fyrir börnin. Það er því með þann draum í huga sem við biðlum til ykkar kæru vinir. Oft vilja leynast gersemar þar sem síst skildi og viljum við biðja ykkur að hafa augun opin fyrir t.d. drumbum, afklippum, rekavið, fjölærum blómum, steinum í öllum stærðum og gerðum, skeljum, kuðungum, berjum og fræjum. Allt er þetta eitthvað sem Klambrarar geta gert sér glaðan dag með. |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 2 af 59 |