Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Sullað í góða veðrinu Prenta
Almennar fréttir
mánudagur, 21 júní 2010 09:56

Á föstudaginn var sullað úti í garði, Tún og Teigur tóku þátt í þessari skemmtun.

Þóra dróg fram vatnsslönguna og bleytti stóra svampa með vatni og svo hoppuðu börnin og skoppuðu á þeim

Myndir og myndbönd frá þessari skemmtun má sjá í myndaalbúminu - undir Tún/júní !

     Endilega skoðið og njótið!

 
Útskriftarferð Prenta
Fréttir frá Teigi
föstudagur, 18 júní 2010 14:14

 

Sælt veri fólkið,

á myndasíðunni eru komnar inn nokkrar myndir frá útskriftarferð Teigara í Viðey. Ferðin var yndisleg og skemmtu allir sér mjög vel.  

Myndir segja meira en mörg orð þannig að endilega kíkið á þær. Einnig eru nokkrar myndir í sömu möppu frá útskriftarathöfninni. Von bráðar setjum við inn myndböndin á síðuna og myndir frá heimsóknum til barnanna.

Bestu kveðjur frá Teigi!

 

 
Þátttökuaðlögun - spennandi nýjung Prenta
Almennar fréttir
miðvikudagur, 16 júní 2010 13:23

Klambrar hafa ákveðið að prófa haustið 2010 nýtt aðlögunarform þ.e. þátttökuaðlögun. Á yngstu deildunum, Hlíð og Holti verður þetta form haft á. Í megindráttum felur þátttökuaðlögun í sér að fyrstu þrjá dagana dvelja foreldrar og barn saman á leikskólanum. Í sameiningu kynnast þau lífinu á Klömbrum. Klambrar hafa gaman af því að takst á við nýjungar og þvi er það með tilhlökkun og spennu í hjarta sem við bíðum eftir að taka á móti nýjum fjölskyldum í ágúst.

 Hér má lesa nánar um þátttökuaðlögun.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 59

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Klambrar | Háteigsvegi 33 | 105 Reykjavík | s: 511 1125 | Póstur | Viðburðir | Fréttir