Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Leikskólinn minn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Einu sinni hét Miklatún Klambratún vegna þess að þar var bóndabær sem hét Klambrar. Við erum ekki alveg á sama stað en nógu nálægt til þess að ferðast um og leika okkur á túninu. Þið finnið okkur með því að líta eftir turnunum á Háteigskirkju og Sjómannaskólanum. Við erum á jarðhæð stúdentagarðanna austan kirkju og sunnan skóla. Þá þekkið þið okkur á skiltunum heimagerðu við inngangana.


Klambrar er 4 deilda leikskóli þar sem eru 88 börn frá 1 árs til 6 ára.

Leikskólinn er til húsa á jarðhæð stúdentagarða BN(Byggingarfélag námsmanna)og var opnaður 10.maí 2002.


Deildirnar heita Teigur, Tún, Holt og Hlíð og eru 1 til 2 árgangar á hverri deild.

Rekstraraðili er Reykjavíkurborg. Leikskólastjóri er Hanna Halldórsdóttir og aðstoðarleikskólastjóri er Þóra Þorvaldsdóttir.


Við leggjum okkur öll fram um að skapa þannig andrúmsloft að það sé gott, gaman og menntandi að vera á Klömbrum hvort sem maður er barn eða fullorðinn.


Öryggi og traust, starfsgleði og jákvæðni, gagnrýnin og skapandi hugsun eru einkunnarorð Klambra eða Klambraandinn. Má segja að hann sé sem rauður þráður í gegnum allt okkar starf

 

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Klambrar | Háteigsvegi 33 | 105 Reykjavík | s: 511 1125 | Póstur | Viðburðir | Fréttir