|
Bugða er samstarfsverkefni fjögurra leikskóla í Reykjavík með
sameiginleg markmið í uppeldisstarfi og starfsmannastefnu. Þetta eru leikskólarnir Brákarborg, Garðaborg, Klambrar og Rauðhóll. Formlegt samstarf skólanna hófst 19. október 2007 með sameiginlegum fræðsludegi.
Faglegt samstarf skólanna byggir á því að leikskólinn er lærdómssamfélag þar sem börn og fullorðnir geta lært og þroskast saman.
Bugðu-leikskólarnir sækja uppeldiskenningar sínar til bandaríska
heimspekingsins og menntafrömuðarins John Dewey um lýðræði í
leikskólastarfi, menntun sem byggir á reynslu og mikilvægi þess að þroska skapandi og gagnrýna hugsun. Starfsaðferðir byggja á kenningum bandaríska uppeldisfræðingsins Caroline Pratt sem vildi að skólinn aðlagaði sig að nemendum en ekki nemendur að skólanum. Einingakubbarnir, sem eru eitt
helsta náms- og kennsluefni Bugðu-leikskólanna, eru niðurstaða tilrauna Pratt til þess að finna “eitthvað svo sveigjanlegt, að börnin gætu notað það án leiðbeiningar og stjórnunar.”
Bæklingur Bugðu
|