Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Hlíðin þakkar vikuna :) Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 09 júlí 2010 12:45

Góðri viku að ljúka. Börnin bjuggu til glæsilegar köngulær sem þau dönsuðu með á vinafundi og sungu um köngulóna sem hafði átta fætur. Einnig gerðu þau límlistaverk unnið úr myndum frá húsaheimsóknum okkar í vor, þetta verk má sjá á glugganum inn á Hlíð.

Gengi Hollendinga á HM kjósum við að tengja beint á Hlíð, þar hefur ríkt appelsíugulur samhugur og gleði leikdaga Hollendinga. Takk fyrir að vera svona dugleg að mæta í appelsínugulu. Við óttumst örlítið að þar sem við verðum ekki saman sem ein heild þegar úrslitaleikurinn verður muni halla undan fæti, en sjáum hvað setur.

Minnum á að Klambrar fara í sumarfrí í næstu viku, það er opið á mánudag og þriðjudag en síðan sjáumst við ekki fyrr en eftir fjórar vikur þ.e. 12. ágúst.

Nýjar myndir í albúminu okkar :)

Eigið súper gott sumarfrí

Hjartans kveðjur frá Hlíð

 

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Klambrar | Háteigsvegi 33 | 105 Reykjavík | s: 511 1125 | Póstur | Viðburðir | Fréttir