| Velkomin í leikskólann |
|
|
|
|
Við bjóðum nýja nemendur og foreldra þeirra velkomna á Klambra Að byrja í leikskóla er ný reynsla fyrir barnið og foreldra þess. Allt er framandi og ókunnugt og því er mikilvægt að standa vel að aðlögun í upphafi. Hvernig til tekst í byrjun getur haft áhrif á alla leikskólagöngu barnsins. Áður en dvöl í leikskóla hefst er gert ráð fyrir aðlögunartíma þar sem foreldrar fylgja barninu fyrstu skrefin í nýju umhverfi. Hér er að finna upplýsingar um starfsemi Leikskóla Reykjavíkur á ýmsum tungumálum/ Here you can find information about preschools in Reykjavík in foreign language Miðað við 1 til 3ja ára börn í 8-9 tíma vistun Haustið 2010 ákvaðu Klambrar að prófa nýtt form aðlögunar þ.e. þátttökuaðlögun. Þetta aðlögunarform felur í sér að foreldri er með barninu sínu samfellt fyrstu þrjá dagana í leikskólanum þ.e. frá kl:9:00-15:00. Foreldri sinnir sínu barni og tekur fullan þátt í starfi deildarinnar. Hér má lesa nánar um þátttökuaðlögun.
ekki hreyfingar þeirra og þau eiga auðvelt með að æfa sig að klæða sig úr og í. Leikskólinn tekur ekki ábyrgð á fatnaði barnanna. Börnin verða að hafa með sér aukaföt og allt verður að vera vel merkt.
|
| 27.09.'10 Valdís ´82 |
| 27.09.'10 Verity ´80 |
| 03.10.'10 Soffía A. ´83 |