Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Fólk á faraldsfæti Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 31 ágúst 2010 12:13

Jæja gott fólk, talsvert miklar breytingar eru að eiga sér stað í starfsmannhópnum á Klömbrum. Hanna leikskólastjóri er horfin til annarra starfa og hefur Þóra tekið við sem leikskólastjóri fram að áramótum og Hulda (deildarstjóri á Teig) verður aðstoðarleikskólastjóri fram að áramótum. Valdís á Teig er farin í skóla. Þorgerður þroskaþjálfi er horfin til nýrra starfa á nýjum stað. Soffía Gríms og Nína munu minnka verulega við sig vinnu en þær eru sestar enn á ný á skólabekk. Við sem eftir sitjum erum með þá von í hjarta að þetta góða fólk sé að upplifa atferli farfuglanna þ.e. að hverfa að hausti en koma til baka að vori

Á næstu dögum/vikum mun því nýtt fólk bætast í hóp Klambrara, nú þegar er komin nýr starfsmaður á Teig, hún Maja og Gígja kemur fljótlega til baka úr fæðingarorlofi.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 174

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Klambrar | Háteigsvegi 33 | 105 Reykjavík | s: 511 1125 | Póstur | Viðburðir | Fréttir